Gavia Invest kaupir 16,8% hlut í Sýn
Fjárfestingafélagið Gavia Invest ehf., sem er í eigu InfoCapital, E&S 101 ehf. og Pordoi ehf. hefur keypt 16,8% hlut í fjarskiptafélaignu Sýn og er þar með orðið stærsti hluthafi félagsins.
Sýn á og rekur vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísi og Bylgjuna. Fyrirhugað er að boða til hluthafafundar á næstunni en Gavia Invest stefnir á að vera virkur þátttakandi í Sýn í gegnum stjórn félagsins.