Blikk fær starfsleyfi sem greisluþjónusta

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitti Blikk hugbúnaðarþjónustu hf. starfsleyfi sem greiðslustofnun samkvæmt lögum nr. 114/2021, um greiðsluþjónustu, hinn 27. október 2023. Í leyfinu felst heimild félagsins til að veita greiðsluþjónustu samkvæmt g- og h-lið 22. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um greiðsluþjónustu en þeir stafliðir taka til greiðsluvirkjunar og reikningsupplýsingaþjónustu.

Leyfið gerir Blikk kleift að vera annars vegar milligönguaðili um greiðslur milli aðila, svokallaður greiðsluvirkjandi og hins vegar veitir leyfið Blikk aðgang að reikningsupplýsingum einstaklinga og fyrirtækja til þriðja aðila sem geta þróað virðisaukandi þjónustur byggða á þessum gögnum. Um bæði tilvikin, þ.e. greiðsluvirkjun og reikningsupplýsingaþjónustu, gilda strangar kröfur um upplýst samþykki og sannvottun þess sem gögnin varða, þ.e. þá einstaklinga og fyrirtæki sem gögnin tilheyra.

Á eftirfarandi miðlum er hægt að finna frekari upplýsingar um leyfisveitinguna og umfjöllun fjölmiðla um málið

Hægt er að finna frekari upplýsingar um Blikk og vörur fyrirtækisins á heimasíðu þess www.blikk.tech.

Next
Next

Ragnar Dyer til liðs við InfoCapital