Ragnar Dyer til liðs við InfoCapital

 
 
 

Ragnar Dyer hefur bæst í hóp eigenda og stjórnenda InfoCapital.
Ragnar hefur yfirgripsmikla reynslu af fjármálamörkuðum en hann starfaði þar í 16 ár við markaðsviðskipti, eignastýringu og sem framkvæmdastjóri í 10 ár, seinast sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Kviku banka og stjórnarmaður í TM tryggingum og Kviku Securities London. Fyrir þann tíma starfaði Ragnar hjá Creditinfo Group sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs og sem deildarstjóri vefþróunar hjá Símanum. Ragnar hefur lokið stjórnendanámi frá Stanford University Graduate School of Business, er með BSc gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur löggildingu í verðbréfaviðskiptum.

Previous
Previous

Blikk fær starfsleyfi sem greisluþjónusta

Next
Next

LearnCove sækir 130 milljónir