LearnCove sækir 130 milljónir
Hugbúnaðarfyrirtækið LearnCove hefur tryggt sér 130 milljón króna fjármögnun til þess að efla vöxt fræðslu- og þjálfunarkerfis síns hér heima og erlendis. InfoCapital var í hópi hluthafa fyrir og jók enn frekar við hlut sinn í þessari fjármögnun.
LearnCove er notað af hópi fræðsluaðila, fyrirtækja, sveitarfélaga, skóla og stofnana hér heima og erlendis til miðlunar námskeiða og ferla. Hugbúnaðurinn er þróaður sem alþjóðlegt fræðslukerfi og býður upp á sjálfvirkan tungumálastuðning á 136 tungumálum
Teymi LearnCove. Frá vinstri : Friðrik Sigurjónsson, Aðalheiður Hreinsdóttir, Gunnar Jónsson, Sölvi Már Benediktsson og Sveinbjörn Ásgeirsson